RITUAL II – VIÐGERÐIN

Sviðssett stefnumót

Dagana 13.–30. maí býð ég gestum í persónulegt viðgerðarritual í Stúdíó 3 á Dansverkstæðinu. Viðgerðin er annar hluti verkefnisins Brothætt, þar sem ég vinn með brot – áþreifanleg og huglæg – og móta úr þeim nýja heild með tengslum, mildi og samkennd.

Þú getur komið ein eða með öðrum (vini eða fjölskyldumeðlim) með brotið leirtau og/eða reynslu af huglægu broti. Í ritualinu vinnum við að því að líma saman það sem hefur brotnað – bæði leirtau og það huglæga.

Ritualið fer fram á miðvikudögum og laugardögum, tekur um 60 mínútur og er fyrir allt að þrjá þátttakendur í senn.

Frekari upplýsingar.