Brothætt: Ritual I – Heilunin

Áttu brotið leirtau?

Viltu deila því sem er brotið?

Í febrúar og mars mun ég dvelja á Dansverkstæðinu og vinnur með gestum að sameiginlegu mósaíkverki úr brotnu leirtaui. Samtímis ætla ég að safna nafnlausum sögum af því sem brotnað hefur í lífi fólks.

Heilunin er fyrsti af þremur rítúölum verkefnisins Brothætt, þátttökuverkefnis sem tekst á við það brothætta og ófullkomna í mannlegri tilvist og upphefur fegurðina í ófullkomleikanum.

Í Heiluninni er grunngjörðin að sleppa tökunum á því sem er brotið, rofið eða virkar ekki lengur og leyfa brotunum að öðlast merkingu í nýju samhengi, þar sem þau sameinast brotum annarra og mynda þannig stærri heild.

Brotið leirtau og persónulegar frásagnir mynda tvö lög verksins: hið áþreifanlega og hið huglæga. Sögur um brotna hluti, brotin bein, brotnar sjálfsmyndir, brostna drauma og brotin sambönd verða að hljóðverki sem mun standa samhliða hringlaga mósaíkverki sem vísar í hringrásarkerfi tilvistarinnar, forgengileika og umbreytingu. Saman renna mynd og hljóð í upplifun sem er vitnisburður um mátt tengsla og samkenndar.

Gestum er boðið að:
– koma með brotið leirtau
– taka þátt í mótun mósaíksins
– eiga samtal við listamanninn
– skrá nafnlausa frásögn
– lesa inn frásögn

Viðvera listamanns 23. Febrúar – 28.mars þriðjudaga – fimmtudaga kl.10 – 16.
Einnig í tengslum við sýningar á dansverkstæðinu.

Utan viðverutíma listamanns verður hægt að skilja eftir leirtau og leggja til sögu á opnunartíma dansverkstæðisins.
Einnig er hægt að taka á móti smærri hópum eftir samkomulagi.

Rafræn skil á sögum og upplýsingar um Brothætt