Afhjúpun á Ritual I: Heilunin

Mósaík í mynd og hljóði

Í febrúar og mars dvaldi ég á Dansverkstæðinu og vann með gestum að sameiginlegu mósaíkverki úr brotnu leirtaui. Samtímis safnaði ég sögum af því sem brotnað hefur í lífi fólks. Nú er verkið tilbúið og hægt er að berja það augum á opnunartíma dansverkstæðisins. Jafnframt er hægt að hlusta á hljóðmósaík, þar sem brotum úr sögum gesta er safnað saman í 20 mínútna hljóðverki – hljóðmósaík.

Þeir sem ekki gátu tekið þátt, þá verður gjörningurinn endurtekinn á Listahátíð 30.maí – 14.júní.