Þú og ég
Handbók fyrir sjálfgerð sviðslistaverk
Í desember kom út verkið Þú og ég, 9 sviðssett stefnumót við það meira-en-mennska, sviðslist sem bók sem býður lesandanum að knýja sviðsverkið áfram með þátttöku sinni. Ég kalla formið, sjálfgerð sviðslist eða á ensku do-it-yourself performance.
Bókin er hluti af Fallegt, sviðslistaverkefni sem fjallar um sjálfbærni og tengsl mannsins við umhverfi sitt. Bókin inniheldur leiðbeiningar um hvernig á að framkvæma verkið og gefur þátttakanda samhengi og forsendur fyrir samtali við það-meira-en-mennska. Verkið fer fram sem röð af gjörðum, pælingum, athugunum og samtölum sem veita þátttakandanum innsýn inn í tilveru 9 fyrirbæra. Þannig stofnar þátttakandinn til sambands við bók, plöntu, lampa, samfélag fugla, tjörn, bekk, fjall, vind og eld. Þátttakendur fylgja leiðbeiningunum til að framkvæma verkið á eigin forsendum, einir eða í félagi við aðra. Það má nálgast verkefnin í bókinni á ólíkan hátt eftir hentisemi, sem hugleiðingar eða sem likamlegan gjörning.
Bókin er nett og fer vel í vasa og opnast svo hægt sé að sitja með eina blaðsíðu opna í kjöltu sér þegar framkvæma á verkið. Bókin er fáanlegur í Skáldu á Vesturgötu, Dansverkstæðinu og í Tjarnarbíó.
Þú og ég er gefin út af Fagurferðum