All My Relations ISL

ALL MY RELATIONS – VISTBÚÐIR (ECOCAMP)

All My Relations er verkefni sem sameinar sviðslistir, kennslufræði og vistfræðilega vitund. Stofnendur þess eru Esa Kirkkopelto, Sodja Lotker og Steinunn Knúts-Önnudóttir, og í Vistbúðunum gefst listafólki og þverfaglegum rannsakendum tækifæri til að deila aðferðum og í sameiningu ímynda sér nýjar leiðir til sjálfbærrar framtíðar. All My Realations er skapandi rými þar sem vistfræðileg hugsun er sameiginleg líkamleg reynsla.

Vinnubúðirnar byrjaði sem samstarf Leiklistarakademíunnar í Malmö (Lundarháskóli), Agenda 2030 Rannsóknarskólans (Lundarháskóli) og Gylleboverket, vettvangs fyrir listir og sjálfbærni á Skáni. Gylleboverket býður upp á einstakt umhverfi þar sem þátttakendur geta stigið út úr amstri dagsins, tengst náttúrunni og öðlast dýpri vistfræðilega vitund í sameiningu. Vinnubúðirnar blanda saman listfræðilegri rannsókn, vistfræðilegri kennslufræði (eco-pedagogy) og performatífum aðferðum, með áherslu á tengsl, líkamsmiðlaða þekkingu og skapandi samtal milli ólíkra fræðasviða.

Vistbúðirnar standa yfir í þrjá daga og á þeim tíma taka þátttakendur þátt í sameiginlegri rannsókn, umræðum og verklegum æfingum sem kanna vistfræðilega möguleika sviðslista og performatífra aðferða. Lögð er áhersla á að borða mat, ræktaðan á staðnum, skapa jafnvægi milli einbeitingar og slökunar og dýpka tengsl bæði manna á milli og við það meira-en-mennska.

Hingað til hefur All My Relations verið haldið fjórum sinnum, þar sem hver útgáfa hefur byggt á fyrri reynslu og þróað frekar nálgunina á sviðslistir, sjálfbærni og vistfræðilega vitund.


Útgáfur 

Útgáfa 1: september 2022

Vistfræðileg kennslufræði, sjálfsrækt og umbreytandi sviðslistaaðferðir

Fyrsta vinnustofan í All My Relations var haldin í Gylleboverket og safnaði saman um 30 alþjóðlegum þátttakendum frá ólíkum sviðum eins og sviðslistum, listfræðilegri rannsókn, menntun, borgarskipulagi og vistfræðilegri hugmyndafræði. Markmiðið var að kanna hvernig listir og sviðslistir geta stuðlað að hugarfarsbreytingu í átt að sjálfbærari lífsstíl.

Útgáfa 2: september 2023

Jafninganám, tilvistarleg sjálfbærni og umbreytandi sviðslistaaðferðir

Önnur vinnustofan fór fram í Gylleboverket þar sem rannsakaður var vistfræðilegur möguleiki sviðslista, performatífra aðferða og vistfræðilegrar kennslufræði. Viðburðurinn sótti innblástur í hugmynd líffræðingsins Lynn Margulis um að „ekkert í líffræði hefur merkingu nema í ljósi samlífis.“ Lögð var áhersla á umbreytingu einstaklingsins og hópsins í gegnum líkamsmiðlaða skynjun, ímyndunarafl og útvíkkað vistfræðilegt sjálf.

Gylleboverket, með Ettu Säfve og Jona Elfdahl í fararbroddi, var gestgjafi vinnustofunnar. Í skipulagsteyminu voru einnig: Aune Kallinen, prófessor við Leiklistarháskólann – Uniarts Helsinki, Steinunn Knúts-Önnudóttir, doktorsnemi við Leiklistarháskólann í Malmö og meðlimur Agenda 2030 Graduate School og Sofie Lebech, dósent við Leiklistarháskólann í Malmö

Útgáfa 3: september 2024

Tengslamyndun, vistfræðileg vitund og stefnumót við það meira-en-mennska 

Þriðja vinnustofan fór fram árið 2024 og dýpkaði rannsóknina á tengslum og vistfræðilegri umbreytingu. Í þessari þriggja daga rannsóknarstofu fengu listamenn og þverfaglegir rannsakendur tækifæri til að kanna tengsl við hið meira-en-mannska, tilvistarlega seiglu og sjálfbæra þróun í gegnum listrannsóknir og performatífar aðferðir. Markmiðið var að brúa bilið milli lista, rannsókna og daglegrar athafna með áherslu á líkamsvitund, ímyndunarafl og gagnkvæm tengsl.

Líkt og í fyrri vinnustofum var Gylleboverket gestgjafi, með Ettu Säfve og Jona Elfdahl í forystu. Í skipulagsteyminu voru einnig Aune Kallinen (Leiklistarháskólinn – Uniarts Helsinki), Steinunn Knúts-Önnudóttir (Leiklistarháskólinn í Malmö, Agenda 2030 Graduate School) og Sofie Lebech (Leiklistarháskólinn í Malmö)

Útgáfa 4: september 2025

Hreyfing sem aðferð, göngurannsókn og tilvistarleg sjálfbærni

Fjórðu vistbúðir All My Relations fóru fram sem farandverkefni þar sem form vinnustofunnar var umbreytt í göngumiðaða rannsóknarstofu. Áherslan var á umbreytingu, ferðalag og tengslamyndun sem líkamsmiðaða reynslu. Með því að ganga saman um landslagið varð hreyfingin sjálf að rannsóknaraðferð og vettvangi tilvistarlegrar ígrundunar þar sem kannaðar voru ólíkar birtingarmyndir hreyfanleika: hirðingjalíf, landflótti og innflytjendareynsla.

Vistbúðirnar voru skipulagðar sem tveggja daga ganga frá Simrishamn til Gylleboverket. Listafólk og þverfaglegir rannsakendur könnuðu hvernig hreyfing mótar skynjun, tengsl og þekkingarsköpun. Gangan varð sameiginleg aðferð þar sem vistfræðileg vitund, athygli gagnvart hinu meira-en-mennska og hugmyndir um sjálfbæra framtíð voru kannaðar í gegnum beina reynslu, samtal og performatíf uppbrot. Á leiðinni voru settar upp búðir sem sköpuðu rými fyrir staðsértæk inngrip, samtöl og einveru.

Líkt og í fyrri útgáfum var Gylleboverket gestgjafi lokahluta vistbúðanna. Auk Ettu Säfve og Jona Elfdahl frá Gylleboverket sátu í skipulagsteyminu Aune Kallinen (Leiklistarháskólinn – Uniarts Helsinki), Steinunn Knúts-Önnudóttir (Leiklistarháskólinn í Malmö, Fagurferðir) og Sofie Lebech (Leiklistarháskólinn í Malmö).


Birt í Matter

Reynsla og innsýn úr vinnustofunum hefur verið birt í Matter, netriti um listfræðilega rannsókn við Leiklistarháskólann í Malmö. Þar er hægt að lesa nánar um aðferðir og hugmyndir sem hafa verið þróaðar í All My Relations Ecocamp.

MATTER JOURNAL